þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Jón Ásgeir og ég

Ég átti von á því að fá greiddann til baka persónuafsláttinn sem ég nýtti ekki í fyrra eftir að ég byrjaði í skóla. 100.000 kell eða svo átti það að vera.

Fékk tæpar 25.000 og var gráti næst, skildi ekki neitt í neinu því ég, viðskiptafræðineminn sjálfur, var búinn að reikna þetta allt út og setja inn í budgetið. Ég setti semsagt endurskoðandann minn í málið. Sá lagði fram kæru því hann var sammála mér, ég átti að fá 108.000 krónur til baka. Mann munar nú um 83.000 kallinn.

Skatturinn svaraði því að ég hefði verið tekinn í tékk, rannsókn eða hvað þetta kallast. Ég!, sem var alveg með heila milljón í fyrra held ég. Mér þykir þetta ósanngjarnt!!! Það hljóta einhverjir að vera líklegri en ég til að fela monní og stinga honum undan.

Ég þarf semsagt að sýna fram á námsframvindu, staðfestingu frá skóla, sem ég skil ekki alveg að geti verið svona mikilvægt. Geta þeir ekki talað við LÍN eða eitthvað?
Og svo þarf ég að sýna tekjuvottorð frá Danmörku. OK, ok, það er kannski ekki mikið mál að fá staðfestingu frá skólanum og því hefur verið reddað.

Til að nálgast tekjuvottorðið þarf ég digital signature. Þegar ég sæki um hana verður aðgangskóðinn minn sendur á skráða heimilisfangið mitt sem er Bartholinsgade 11. Það gengur ekki upp þar sem fyrrverandi leigusalinn okkar er í brjálæðiskasti út í okkur og sakar okkur um að hafa reynt að fara aftan á hann í Rodeo-reið. Ég býst við að hann brenni allann póst stílaðann á mig.

Því ætlaði ég að reyna að skipta um adressu og fá aðganginn sendann til Hauks og Öglu. En viti menn, ég þarf digital signture til að geta skipt um adressu á netinu.
Það er sosum ekkert óeðlilegt en þetta kallast deadlock eins og Haukur orðaði það.

Þannig að ég skipti náttúrulega um adressu um leið og ég kem út, redda fokking tekjuvottorði, sendi það heim og þarf þá örugglega að bíða í einhvern tíma eftir að málið verði afgreitt. Peningana ætlaði ég að nota til að greiða upp í allt of háann yfirdrátt en í staðinn borga ég frekari vexti af öllu saman. HVERS ÉG AÐ GJALDA?

Svo hafa þeir ekki einu sinni lagt inn á mig 25.000 kallinn sem þeir ætluðu þó að láta mig hafa.

12 Comments:

Blogger roffe sagði...

Hello from Norway!

12:11  
Blogger styrmir sagði...

Blessaður

12:13  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Helvítis kerfið!
Mig dreymdi enmitt í nótt eftir allt þitt brask að ég sjálf sem á einmitt skv.öllu von á summu nk ágúst, að e´g hefði verið ógeðslega séð og sýnt fram á allt, framvinu náms og de hele. Spurning hver sé sækó þar sem ég er ekki einu sinni byrju8ð í háskóla.
Allavega langaði bara að segja þér og lesendum þínum þetta.
Marta

14:21  
Blogger Heklurnar sagði...

Djöfulsins bömmer!
-stella

02:14  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Gott að hafa kerfi sem er sérhannað til að þjóna notendum sem allra best og á sem þægilegastan máta.
obe

16:44  
Blogger Þóra sagði...

styrmir, þetter hræðilegt. ég nennti reyndar ekki að lesa alla færsluna en það var bara af meðvirkni. ég fer alltaf að grenja þegar ég hugsa um skattinn og hvernig hann getur lag líf manns í rúst með einu bréfi. Einu bréfi.

23:31  
Blogger styrmir sagði...

Takk fyrir stuðninginn allir.

10:57  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Amagerklíkann bídur spennt eftir ad fá einn einn rydgadan hardjaxlinn yfir.

1000 rúblur.

Ingó "klíku-medLIMUR"

12:47  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Blezzaður!

Tilkynni hér með að STOMP verður með sýningu í Kaupmannahöfn 14.febrúar 2006, sýningin verður í Falconer Salen í Frederiksberg.

Allir sem vettlingi geta valdið mæti!

Miðar eru seldir á billetnet.dk og kosta frá 295-395 DDK

2 kr í bauk í 4 mánuði og miðinn er kominn ;) Fátækt er ekki s.s afsökun til að missa af þessu

Fyrir þá sem ekki þekkja STOMP þá.... www.stomp.co.uk það finnst ekki margt magnaðara en þetta lið

'Agústa*

20:26  
Blogger Dagný Rut sagði...

Fór á STOMP þegar þeir komu til Íslands - magnaðmagnaðmagnað. Mæli algjörlega með að Amagerklíkan og aðrir köbenbúar mæti.

23:22  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Jájájá nóg um stomp ég millifæri bara á þig Stymmi og splæsi á þig á Stompið, en hvernig væri að fara að bomba enni færslu inn!
Marta

19:28  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Jájájá nóg um stomp ég millifæri bara á þig Stymmi og splæsi á þig á Stompið, en hvernig væri að fara að bomba enni færslu inn!
Marta

19:28  

Skrifa ummæli

<< Home